Hver erum við

Um Hugvekjuna

Hugvekjan er þankaveita með áhugafólki um þjóðfélagsmál. Tilgangurinn er að kafa ofan í mál sem eru í brennidepli, opna samtalið og stuðla með því að upplýstri umræðu.

Lagt er upp með að skoða mál frá öllum sjónarhornum, greina vandamál en hugsa í lausnum og ýta undir málefnalega rökræðu. Svo mega þjóðfélagsmál líka vera skemmtileg.

Aðstandendur

Á meðal þeirra sem standa fyrir Hugvekjunni eru Pétur Blöndal, Konráð Guðjónsson, María Guðjónsdóttir, Halldór Harðarson og Atli Sveinsson.

Bakhjarlar

Á meðal bakhjarla eru atvinnugreinasamtök og fyrirtæki sem styðja opna umræðu um þjóðfélagsmál.

Greiðari leið

Á greidarileid.is má fræðast um það sem efst er á baugi í umferðarmálum, bæði hér og erlendis — og hvaða leiðir eru færar til að greiða leið fólks í umferðinni.