Greiðari leið – hugmyndir óskast

28. apríl 2026 · Hilton Reykjavík Nordica

Greiðari leið – hugmyndir óskast

Ráðstefnan Greiðari leið – hugmyndir óskast! fór fram 28. apríl á Hilton Nordica þar sem fulltrúar atvinnulífs, hins opinbera og sérfræðingar komu saman til að ræða stærstu áskoranir í samgöngumálum höfuðborgarsvæðisins og mögulegar lausnir.

Hátt í 300 manns fylltu salinn og fjölmargir fylgdust með í beinu streymi á mbl.is og vb.is. Að fundinum stóð Hugvekjan, sem hefur að markmiði að stuðla að opnu samtali og upplýstri umræðu. María Guðjónsdóttir og Pétur Blöndal stýrðu ráðstefnunni. Hér er upptaka frá ráðstefnunni.

Reykjavík í toppbaráttu í umferðatöfum

Konráð Guðjónsson, hagfræðingur hjá Kontext, hóf daginn með yfirferð á stöðu samgöngumála og framkvæmdir eða framkvæmdaleysi síðustu ára. Þar vakti sérstaka athygli að Reykjavík er nú í öðru sæti yfir mestu umferðatafir á Norðurlöndum, á eftir Helsinki.

Þurfum við öll að leggja af stað á sama tíma?

Daði Baldur Ottósson, samgönguverkfræðingur hjá EFLU, velti upp einfaldri en áhugaverðri spurningu: Hvað ef við dreifðum álaginu betur yfir morguninn? Hann benti á að 16 mínútna akstur frá Hafnarfirði að Háskóla Íslands getur auðveldlega orðið að 50 mínútna ferð í morgunumferðinni.

Suðurlandsbraut í brennidepli

Suðurlandsbrautin hefur verið mikið í umræðunni enda fyrsti leggur Borgarlínunnar. Á svæðinu starfa um 2.400 manns og því ljóst að framkvæmdir munu hafa veruleg áhrif. Í pallborðsumræðum ræddu Árni M. Mathiesen, Bryndís Friðriksdóttir og Þórarinn Hjaltason mögulegar útfærslur Borgarlínunnar.

Snjallljós sem stytta biðina

Anders Palm frá Swarco Technologies í Danmörku sagði frá þróun snjallljósastýringar sem víða hefur reynst bæði hagkvæm og áhrifarík leið til að draga úr umferðartöfum.

Pallborð með oddvitum í Reykjavík

Ráðstefnunni lauk með líflegum pallborðsumræðum þar sem oddvitar sex stærstu framboða í Reykjavík ræddu framtíð samgangna í borginni. Þrátt fyrir ólíkar áherslur voru allir sammála um eitt: staða samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu kallar á aðgerðir.

Samgöngumál hagsmunamál fyrir þjóðina

Greiðari samgöngur draga úr vinnutapi, lækka flutningskostnað, efla skilvirkni, stuðla að meiri framleiðni og ýta undir hagvöxt. Þær eru því forsenda samkeppnishæfni þjóða, heilbrigðrar verðmætasköpunar og bættra lífsgæða.

Á meðal bakhjarla voru Samtök atvinnulífsins, Samtök verslunar og þjónustu og Félag atvinnurekenda, ásamt fyrirtækjum við Suðurlandsbraut 4–32 og BL, Heklu bílaumboði og Toyota á Íslandi.

Fræðast má frekar um ráðstefnuna á heimasíðu hennar greidarileid.is.